Bókmenntaumfjöllun

Hrollvekjan á sér ekki mikla hefð í íslenskum nútímabókmenntum og er það verr. Nóg er af hryllingi í sagnaarfinum, en einhvernveginn virðist þetta frábæra efni ekki hafa náð fótfestu í nútímanum,...

Í skáldsögu Hildar Knútsdóttur, Slætti, er sagt frá stúlkunni Eddu sem hefur lifað með hjartagalla, allt þar til hún fær nýtt hjarta fimm árum fyrir sögutíma bókarinnar. Þetta framlengir...

Aftan á bókarkápu stendur að Höfuð drekans á vatninu sé ellefta ljóðabók Guðbrands Siglaugssonar, allt frá árinu 1977. Þetta fannst mér athyglisvert og dáldið skelfd fór ég að skoða gegni...

Einhverra hluta vegna var það ekki alveg auðhlaupið að setja saman ritdóm um smásagnasafn Naju Marie Aidt, Bavíana. Áður en ég vissi af var ég komin á kaf í að laga til í frystinum og...

Ljóðið sjálft og það að skrifa er Magnúsi Sigurðssyni hugleikið í ljóðabók hans Blindir fiskar. Það þarf svosem ekki að koma á óvart, því fyrri ljóðabók hans, Fiðrildi, mynta og...

Það hefur borið nokkuð á því að myndlistamenn leggi fyrir sig skrif. Í sumum tilfellum hafa þeir jafnvel að mestu horfið frá myndlistinni og snúið sér að ritlistinni, enda má vel halda því fram að...

Marlene og ég er þriðja ljóðabók Gunnars M. G. en hann er ungt skáld, mannfræðingur að mennt, samkvæmt því sem njósnaði á gegnir.is. Bókin er ein af fjórum ljóðabókum sem Uppheimar sendu frá sér á...

Þýðandi:

Þegar ég var beðin um að skrifa um safn ljóðaþýðinga Gyrðis Elíassonar átti ég von á góðu, en gat þó ekki gert mér í hugarlund hvers konar fengur þetta yrði. Þetta er ekkert lítið kver með nokkrum...

Það hefur löngum verið hlutverk bókmennta að fjalla um samtímann eða endurspegla hann á einhvern hátt. Þannig hafa íslenskar bókmenntir undanfarinna ára komið inn á hið svokallaða góðæri (sem...

Húfulaus her jólasveina barst mér í umslagi um daginn. Umslagið er partur af „ritröð um menningu og mannlíf með ritgerðum, greinum, sögum, ljóðum og myndverkum”, segir aftan á umslaginu. Fyrsta...

Japanski rithöfundurinn Haruki Murakami segist vera skáldsagnahöfundur. Hann segir að ef skáldsögurnar hans yrðu dregnar frá honum þá væri ekkert eftir. Þetta er setning sem gæti komið beint úr...

Titillinn hér að ofan hefði getað verið undirtitill Ódáðahrauns, nýjustu skáldsögu Stefáns Mána. Skúrkurinn Óðinn R. Elsuson er reyndar bisnessmaður að upplagi en alltaf röngu megin við lögin....

Tíu ár eru nú liðin frá því að fyrsta skáldsaga Árna Þórarinssonar, Nóttin hefur þúsund augu, kom út. Á þessum tíma hefur hann sent frá sér átta bækur. Tvær eru skrifaðar í samvinnu við...

Sólkross Óttars M. Norðfjörð kemur fast á hæla Hnífs Abrahams, og hefur verið kölluð sjálfstætt framhald hennar. Böndin milli bókanna eru þó lítil sem engin, nema að báðar eru...

Skrýmslið hefur löngum verið ákaflega vinsælt viðfangsefni skáldskapar. Það er eitthvað ómótstæðilegt við það hvernig óvættin ræðst á öll viðtekin gildi og leggur samfélagið í rúst - um stund...

Það kemur ekki á óvart að saga Philippe Claudel, Í þokunni, hafi verið kvikmynduð, því bókin er sérlega myndræn og knöpp. Claudel teiknar upp lítið þorp við víglínuna í fyrri...

Eva er kona á sextugsaldri sem lifir friðsælu lífi í gömlu sumarhúsi á vesturströnd Svíþjóðar ásamt sambýlismanni sínum. Hún heldur lauslegu sambandi við vini sína til margra áratuga og reynir að...

Ég var ekki há í loftinu þegar ég byrjaði að drekka í mig íslenskar þjóðsögur og ævintýri (er það reyndar ekki enn), en þetta menningaruppeldi æskunnar er án vafa mitt mikilvægasta....

Síðan íslenskar glæpasögur fóru að ryðja sér til rúms hér á landi á hafa reglulega komið upp raddir sem fordæma þessa tegund bókmennta og harma ágang hennar á góðan smekk og gengi fagurbókmennta....

Morð fyrir luktum dyrum eftir Hermann Stefánsson

Morð fyrir luktum dyrum barst mér í umslagi um daginn. Umslagið er partur af „ritröð um menningu og mannlíf með ritgerðum, greinum, sögum, ljóðum og myndverkum”, segir aftan á umslaginu. Fyrsta...

ljóð af ættarmóti

„Hver erum við? / Hvar erum við? / Erum við / við?” Svona hefst eitt ljóðanna í Ljóð af ættarmóti eftir Anton Helga Jónsson. Þetta er afskaplega kunnugleg tilvistarleg spurning sem öðlast...

Að mörgu leyti virkar ljóðabók Þórarins Eldjárns, Vísnafýsn, eins og barnabók fyrir fullorðna. Þetta segi ég ekki ljóðunum til minnkunnar, enda hafa barnaljóð Þórarins notið fádæma...

Stolnar raddir er fyrsta skáldsaga Hugrúnar Kristjánsdóttur og samkvæmt Gegni, samskrá bókasafna, hefur ekkert annað komið út eftir hana. Ég vissi því ekkert á hverju ég átti von þegar ég hóf...

Setningin, „Vatnið suðar í katlinum”, segir ansi mikið um söguna Missi eftir Guðberg Bergsson. Setningin birtist á fyrstu síðu þessarar stuttu skáldsögu sem ber undirtitilinn „Stuttsaga”...

Ég efast um að ég hafi lesið meiri texta eftir nokkurn mann annan en Þorgrím Þráinsson í barnæsku minni. Ekki bara var ég sammála flestum jafnöldrum mínum um það að Tár, bros og takkaskór væri...

hringnum lokað

Skáldsaga breska höfundarins Michael Ridpath, Hringnum lokað, er lýst sem glæpasögu, alþjóðlegri metsölubók sem gerist á Íslandi. Bókin, sem á frummálinu nefnist Where The Shadows Lie...

Það fylgir því alltaf töluverð eftirvænting að fá í hendur nýja bók eftir Arnald Indriðason og ekki dregur það úr eftirvæntingunni að nú eiga lesendur von á að fá að vita hvað kom fyrir Erlend...

Það getur haft skelfilegar afleiðingar að vera á röngum stað á röngum tíma. Því kynnist loftslagsfræðingurinn Adam Kindred svo sannarlega þegar að hann lendir fyrir tilviljun á vettvangi morðs án...

Tregðulögmálið eftir Yrsu Þöll Gylfadóttur gerist á haustmánuðum. Söguhetjan og sögumaðurinn Úlfhildur er á frumstigi þess að skrifa B.A.-ritgerð í bókmenntafræðum og stefnir framan af á útskrift...

Hversdagsgæfa eftir Þóru Jónsdóttur

Stundum er ég fengin til að fjalla um hlutverk gagnrýnandans. Eitt af því sem ég legg mikla áherslu á er að gagnrýnandinn á að þjóna lesendum bókarinnar, mun frekar en höfundi hennar (hvað þá...

Einhverntíma las ég dáldið skemmtilega fræðilega útlistun á því hvernig óreiða er fyrirbæri sem vindur ævinlega uppá sig. Óreiða er ástand sem stigmagnast ef ekki er gripið inní og málin tekin...

Það er glaður og kraftmikill strákur sem flytur í Valhöll og er útnefndur Verndari frjálsra manna í annarri bók Friðriks Erlingssonar um þá félaga Þór Óðinsson og Mjölni, töfrahamarinn ógurlega....

Ekki eru nema nokkrir áratugir síðan að hugtakið „unglingur“ þótti æði nýstárlegt. Fram að því voru skilin skörp á milli æsku og fullorðinsára, börn höfðu einfaldlega komist „í fullorðinna manna...

Ég hikaði aðeins þegar ég fékk í hendurnar nýjustu bók Jónínu Leósdóttur, Allt fínt ... en þú?, ekki af því ég efaðist um hæfileika Jónínu til að skrifa heldur vegna konunnar sem hékk á...

Hafið hefur löngum verið uppspretta skáldskaparmála ýmiskonar, enda afskaplega skáldlegt fyrirbæri, nátengt dulvitundinni og móðurinni. Hafið hefur þó ekkert endilega verið nærtækt íslenskum...

Það er forvitnilegt að bera saman káputexta bókar Ragnars Jónassonar, Snjóblinda, og titil bókar Árna, Morgunengill. Í fyrrnefndu bókinni er talað um að kona líkist snjóengli þar sem hún liggur...