Fréttir
Á nýársdag verður nýju ári fagnað í Gröndalshúsi með ljóðaflutningi skálda frá birtingu til myrkurs. Húsið opnar kl. 10:03 og verða ljóð lesin upp allan daginn þar til dimmt er orðið kl. 17:00.
Mílanó, systurborg Reykjavíkur í Samstarfsneti skapandi borga UNESCO býður upp á gestadvöl fyrir útgefendur, bóksala og bókasafnafólk frá öðrum Bókmenntaborgum UNESCO í mars 2020. Skila þarf inn umsóknum í... Meira
Bókmenntaborgir UNESCO vekja athygli á Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna með því að benda á bækur sem tengjast þeim á samfélagsmiðlum undir myllumerkinu #17Booksfor17SDGs. Tilefnið er loftslagsráðstefna Sameinuðu... Meira
Í dag, 1. desember, var tilkynnt hvaða fimmtán bækur eru tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2019. Verðlaunað er í þremur flokkum, flokki fræðibóka og rita almenns efnis, flokki barna- og ungmennabóka og... Meira
Harpa Rún Kristjánsdóttir hlýtur Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2019 fyrir ljóðahandritið Edda. Bókin kom út í dag, 22. október, hjá bókaútgáfunni Sæmundi og er þetta fyrsta ljóðabók skáldsins.
Kanadíski rithöfundurinn Chantal Ringuet, sem er gestahöfundur Reykjavíkur bókmenntaborgar UNESCO í október, heldur erindi í Mengi miðvikudaginn 23. október kl. 17:30.
Föstudaginn 8. nóvember verður haldið málþing um bernskulæsi í víðum skilningi þar sem sjónum verður beint að mikilvægi orðlistar, mynda og tóna í lífi ungra barna. Bókmenntaborgin, SÍUNG, Fyrimynd og... Meira
Jólaálfurinn sem flutti inn eftir Grétu Þórsdóttur Björnsson og Halldór Snorrason hefur verið valin sem jólasaga ársins í jóladagatali Borgarbókasafns og Bókmenntaborgarinnar.
Línur úr ljóðinu Vetur eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur hafa verið settar niður á nýju torgi við steinbryggjuna í miðbæ Reykjavíkur. Borgarstjóri afhjúpaði ljóðið þann 5. september að skáldinu viðstöddu.
Í tilefni af 200 ára fæðingarafmæli Jóns Árnasonar (1819-1888) þjóðsagnasafnara og landsbókarvarðar hefur Bókmenntaborgin sett upp bókmenntamerkingu á Laufásvegi 5.
Í júlí síðastliðnum tóku þær Meg Matich og Gunnhildur Jónatansdóttir þátt í þýðingasmiðju í Lviv í Úkraínu. Lviv er Bókmenntaborg UNESCO líkt og Reykjavík og var m.a. þýðendum frá öðrum Bókmenntaborgum boðið að sækja... Meira
Tilkynnt hefur verið hvaða bækur eru tilnefndar til Ísnálarinnar að þessu sinni en verðlaunin eru veitt fyrir íslenska þýðingu á erlendri glæpasögu.
Borgarbókasafnið og Bókmenntaborgin óska eftir umsóknum frá rit- og myndhöfundum fyrir jólasögu Borgarbókasafnsins 2019.
Kanadíski rithöfundurinn Chantal Ringuet hefur þegið boð um að dvelja í Reykjavík í október 2019.
Sögur - verðlaunahátíð barna var í beinni útsendingu í sjónvarpinu sunnudaginn 2. júní.
Bresku skáldin Lavinia Greenlaw og Simon Armitage, sem er nýskipað lárviðarskáld Bretlands, og írska skáldið Paul Muldoon eru væntanleg til Íslands nú í júní til að taka þátt í tveimur viðburður í Bókmenntaborginni... Meira
Maístjarnan - ljóðaverðlaun Rithöfundasambands Íslands og Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns voru veitt við hátíðlega athöfn 20. maí.
Sendiráð Þýskalands á Íslandi, Goethe stofnun í Kaupmannahöfn og Reykjavík bókmenntaborg UNESCO standa fyrir viðburðaröð um sögu þýskra kvenna á Íslandi nú í júní með þýska rithöfundinum og blaðamanninum Anne... Meira
Tilnefningar til Maístjörnunnar vegna ljóðabókar útgefinnar 2018 voru kynntar við hátíðlega athöfn í Gunnarshúsi 29. maí.



















