Klettur í hafi

Útgefandi: 
Staður: 
Reykjavík
Ár: 
1991
Flokkur: 

Málverk eftir Þorlák Kristinsson.

Úr Klettur í hafi:

Af reimleikum (brot)

I

Kalt er í veðri,
sveitin döpur
og dimmt um að litast.

Það berast fregnir
að reimt sé í dalnum,
að vindarnir blási
og veturinn sitji um
hæðir og holt.

Kalt er í veðri,
kyndugir skuggar á sveimi,
það ýlir í veggjum
og haglélið æðir
í byljum um tún.

Hljómmikil rödd,
dimm einsog drunginn,
hverfur í myrkur
og hvínandi kóf.

Það er spurt
hvar hann sé
en enginn veit svarið,

- sprek falla í eld,
ekkert sést
nema fjúkandi snjór.

II

Kalt er í veðri,
dimmt um að litast,
dapurt í skuggsælum dal.

Þegar birtir af degi
sést blóðug slóð
upp í björgin.

Fallið er fé
eða gengið á fjöll,
grátt yfir gangandi mönnum,

- meinvættur horfinn -

en þegjandi liggur hann,
þungur sem naut,
úlfgrátt er hár,
ísköld dimma í augum.