Örnefni við Eskifjörð: Sögur og sagnir af örnefnasvæðinu.
Úr formála Einars Braga:
Skrá þessi er nefnd Örnefni við Eskifjörð, þótt hún nái út fyrir mörk Eskifjarðarhrepps á báða vegu. Ánalegt hefði verið að tíunda örnefni úr hálfu landi Hólma og Svínaskála. Þess vegna eru landamerki fyrrnefndra jarða látin ráða endimörkum örnefnaskrárinnar.
Skráin hefur verið í smíðum í fjögur ár og margir að unnið. Markmiðið var náttúrulega, að hún yrði sem allra fyllst og áreiðanlegust. Engu að síður má nærri fullvíst telja, að enn séu á henni missmíði. Samning örnefnaskrár er slíkt nákvænisverk, að endalaust virðist um hægt að bæta. Því væri æskilegt, að kunnugir lesendur gerðu útgefendum viðvart, hversu smávægilegar athugasemdir, sem þeir hafa með rökum fram að færa, svo að þær geti komið til athugunar við síðari útgáfu örnefnaskrárinnar.
Starfinu var í höfuðdráttum hagað þannig: Í Þjóðminjasafni er varðveitt skrá um 360 örnefna af þessu svæði, sem dr. Stefán Einarsson, fyrrverandi prófessor, gerði fyrir mörgum árum. Ég fékk ljósrit af henni og sendi Byggðarsögunefnd Eskifjarðar. Nefndarmenn skiptu með sér verkum við að auka hana og leiðrétta. Er gerð grein fyrir umdæmi hvers þeirra í inngangi að svæðaskránum. Þeir leituðu fanga hjá fjölda kunnugra manna, einkum af eldri kynslóð, og er flestra getið hér að aftan. Því næst tók ég við, færði skrána í letur eftir athugagreinum nefndarmanna, lagði orð til eftir því, sem ekking entist, og sendi þeim á ný með athugasemdum og fyrirspurnum. Þannig hafa orðið sex gerðir í handritum og þessi hin sjöunda. Inngang að öllum svæðaskránum hef ég smaið, einnig dregið að það, sem sótt er í ritaðar heimildir eða prentaðar. Loks ber ég einn ábyrgð á göllum, sem enn munu á verkinu finnast.
(8)
