Steingrímur Thorsteinsson: líf hans og list

Höfundur: 
Útgefandi: 
Staður: 
Reykjavík
Ár: 
1964

Úr Steingrími Thorsteinssyni:

Efahyggja og endurskoðun viðtekinna aðferða, hugmynda og hugsjóna markar að stórum hluta listsköpun 20. aldar. Sú þróun hefur þó ekki varpað skugga á listverðmæti fyrri tíma, jafnvel þótt þau eigi rætur í forsendum, sem nú hefur þótt nauðsynlegt að víkja frá. Ný list megnar ekki að birta frá öllum hliðum þau efni, sem manninn varða. Af þeim sökum leita menn ávallt á náðir þess, sem gengnar kynslóðir hafa sett fram í máli, mynd og hljómi, jafnframt því sem þeir tileinka sér listverðmæti samtíðar sinnar(...)

    Veröld Steingríms og skálda sama sinnis mun líklega fjarlæg ýmsum nú á tímum. Þar var hvergi rúm fyrir þá djúplægu, menningarlegu útlegðarkennd, sem alið hefur af sér mörg ágæt skáldverk þessarar aldar. En rýrir það gildi hennar? Listin hefur jöfnum höndum verið andhverfa og samsvörun þess sem er, af því hvort tveggja er manninum nauðsyn: að hefjast yfir vettvang stundarinnar og horfast í augu við hann. Veröld, þar sem ríkir sæla kyrrðarinnar og einfaldleikans og vitundin um tilgang hins fagra, á hún ekki jafnvel brýnna erindi við oss en samtíðarmenn Steingríms Thorsteinssonar?

(s. 281 - 282, 1. útg.)