Kvæðasafn 1951-1976

Höfundur: 
Útgefandi: 
Staður: 
Reykjavík
Ár: 
1977
Flokkur: 

Úr Kvæðasafni 1951-1976:

Geimflaugar

Þær eru geltandi hundar
sem geysast í veg fyrir tunglið:
fölgyllta sylgju næturinnar
fornvin þeirra sem elska.

Þær eru krepptur hnefi
kynslóðar minnar
sem hún slöngvar út í tómið
í togstreitu sinni við guð.

Þær eru floti Kólumbusar
á fagurbúinni siglingu
burt frá jörð
út til blikandi stjarnanna.

(s. 72)