13. ágúst, 2012
Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO býður upp á fjölbreytta dagskrá í Hörpu á Menningarnótt, laugardaginn 18. ágúst. Dagskráin fer öll fram á svo kölluðum Norðurbakka, sem er á 1. hæð hússins sjávarmegin. Hún er tileinkuð borgarbókmenntum í víðum skilningi og koma skáld ólíkra kynslóða við sögu, allt frá tímum fyrstu borgarbókmenntanna í hinu nýja lýðveldi um miðja síðustu öld til borgar aukins margbreytileika dagsins í dag. Bergur Ebbi verður með uppistand sem hann byggir á götumáls- og slangurorðasafni Elíasar Mar og tvær hjómsveitir flytja tónlist, annars vegar Bókbandið sem er skipað meðlimum sveitarinnar Moses Hightower og hins vegar söngkonan Fríða Dís Guðmundsdóttir úr Klassart ásamt hljóðfæraleikurum. Allir eru hjartanlega velkomnir.
DAGSKRÁ:
ÞÍNA SKÁL REYKJAVÍK Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO og Rithöfundasamband Íslands Harpa 14:30 – 15:30
Reykvískir höfundar flytja skáldskap um bókmenntaborgina Reykjavík frá ólíkum hliðum. Höfundarnir eru Kristín Steinsdóttir formaður Rithöfundasambands Íslands, Sigurður Pálsson, Vigdís Grímsdóttir, Bragi Ólafsson, Þórdís Gísladóttir, Eiríkur Guðmundsson og Sjón, sem er formaður stjórnar Bókmenntaborgarinnar. Bókbandið leikur og syngur Reykjavíkurlög, en hljómsveitina skipa þeir Steingrímur Karl Teague, Andri Ólafsson og Daníel Friðrik Böðvarsson sem allir eru meðlimir hljómsveitarinnar Moses Hightower. Að morgni Menningarnætur afhendir borgarstjóri Rithöfundasambandi Íslands Gunnarshús til eignar, fyrrum heimili Gunnars Gunnarssonar rithöfundar, og er dagskráin sett saman í tilefni þessa.
