snjór piss hár

Útgefandi: 
Staður: 
Reykjavík
Ár: 
2000
Flokkur: 


Bókin kom út ásamt fjórum öðrum bókum í öskju, sem gefin var út í 100 eintökum. Ritstjórar: Oddný Eir og Uggi Ævarsson



Úr snjór piss hár:



Oft eru apar á ferð

um hálendi Íslands í hópum

litlir apar í úlpum

vandlega renndum upp



hálfapar með húfur

hanga í skottinu á hinum

fljótlega dragast aftur úr

og láta sig detta í snjóinn



hinir hundskast áfram

yfir fjöll og firnindi

í leit að löngu liðnum tíma

í hálfgerðu vonleysi