Bragi Ólafsson og Soffía Bjarnadóttir rita ljóð í alþjóðlegt safnrit í Gröndalshúsi. Í tilefni ársfundar Samstarfsnets skapandi borga UNESCO í Kraká og Katowice í Póllandi í júní 2018 tók Bókmenntaborgin Reykjavík þátt í ljóðaverkefninu Poetic Encounters sem Bókmenntaborgin Heidelberg í Þýskalandi og Handverksborgin Fabriano á Ítalíu áttu frumkvæði að. Það fólst í því að útbúa handgert safnrit með ljóðum skálda frá Bókmenntaborgum UNESCO til að fagna orðlistinni og minna á mikilvægi bókmennta og tungumála í heimsmenningunni. Ljóð Braga í bókinni er "Tuttugu línur um borgina" úr bók hans Öfugsnáði (Bjartur, 2017) og ljóð Soffíu er úr bók hennar Ég er hér (Mál og menning, 2017).
Upptakan fór fram í Gröndalshúsi í Fischersundi í janúar 2018.
Kvikmyndagerð: Tjarnargata.














