Blandarabrandarar (Die Mixerwitze)

Útgefandi: 
Staður: 
Reykjavík
Ár: 
2005
Flokkur: 

Ljóðabók gefin út í ritröðinni Norrænar bókmenntir sem Nýhil gaf út 2005 og 2006. Ritröðin inniheldur átta bækur eftir jafn marga unga íslenska höfunda.

Úr Blandarabröndurum:

Haukur Már Helgason: Bregður hnífi á háls
sjónvarpsmanns

- Fréttablaðið 22. október

Bara gys og glens
í hressari kantinum
en nú er öldin önnur.

Dóplistamaður sýknaður
- DV 25. október

Aftur á netið
í undirheimum Íslands
og baráttunni.

Fagnaðir þú kvennafrídeginum?
- DV 26. október

Að upplifa mig
betri í minnihluta
fannst mér yndislegt.

Elliheimilin næsta skrefið
- Fréttablaðið 25. október

Kúbönsk öll í Köln
halda hafðbundna dagskrá
klippa saman andskotann.

Ég er saklaus
DV 6. október

Lítill fótur var
handtekinn í Reykjavík.
Var ekki saklaus.

Þróunarlönd drukkna í tölvuúrgangi
- Fréttablaðið 26. október

Digital rusl ról;
misnotkunar ástandið
á Vesturlöndum.