Blóðhófnir

Höfundur: 
Útgefandi: 
Staður: 
Reykjavík
Ár: 
2010
Flokkur: 

Um bókina:

Blóðhófnir er heitið á hesti þeim er Skírnir, skóveinn Freys, ríður á til Jötunheima að sækja Gerði Gymisdóttur fyrir húsbónda sinn. Gerður Kristný sækir efni í fjórðu ljóðabók sína til Skírnismála og segir hér sögu þessarar nöfnu sinnar.


Úr Blóðhófni:

Freyr stóð
við gerðið

úlfgrá augun
eltu mig

Hann vafði
hári mínu
um hönd sér
og leiddi mig

burt

Bærinn
reistur úr
raunum

Þakið úr
þögn

Innviðir
klæddir illsku

Dagur að
kvöl kominn

Vígtennt myrkrið
skreið yfir
himinhvolfið