Úr Döggslóð:
Andlát
Nýlega lézt
að heimili sínu
hélugrár öldungur
öndvegismaður
á alla lund
klæddur í kjólföt
kominn með pípuhatt
að fara á fund.
Þá hringdi síminn
svolítið önugur
sagði hann og dustaði
rykkorn af löfunum:
Já, hver er það?
Dauðinn, var svarað,
ég er lagður af stað!
