Dyr að draumi

Útgefandi: 
Staður: 
Reykjavík
Ár: 
2005
Flokkur: 


Dyr að draumi er tuttugasta ljóðabók Þorsteins.

Úr Dyr að draumi:

Svör

Með stroknu fasi
ilma í dag af dásemd
hin sjálfbirgu svör.

Á morgun dreifa þau
hatri, sprengjum og heimsku.

Einungis eitt
svar mun á jörðu satt.

Það eigrar um rústirnar
orðlaust. Ég ber
kinnroða fyrir tilvist

þessa míns velviljaða, heilbrigða,
orðspaka, einskismegandi ljóðs.

Dyr að draumi

Opnar ég sá
dyr að draumi:

dyr inn í bláinn

og hljóp í ofvæni
hlaðbrekkuna þá

til fundar við ástleitið
auglit: það hló við mér
álengdar,
hvar sem ég stóð

og braut sér leið
inn í ljóð

sem talið verður framvegis
fjalla um allt

já, allt, allt, allt
annað ...