Höfundur: Þorsteinn frá HamriÚtgefandi: LjóðhúsStaður: ReykjavíkÁr: 1977Flokkur: Ljóð Úr Fiðrið úr sæng DaladrottningarVísaSöknuður í brjósti mínu:svöl tjörn á fjallinu.Í tærri lygnunnititrar mynd þín,þegar blærinn andarhvísla bárurnar orð þín,söknuður í brjósti mínu,segðu það engum.Svöl og djúptjörn á fjallinu.