Fjórar línur og titill er safn 52 texta, og eins og titill bókarinnar gefur til kynna eru þeir samsettir af fjórum línum og titli. Bókin var gefin út í 299 eintökum og eru 99 þeirra tölusett og árituð af höfundi.
Úr Fjórum línum og titli:
Old Norse
Hvorki ég
né mínir nánustu
getum tjáð okkur um okkar eigin mál
á öðrum tungum.
Hliðarvagn
Systir mín hefur keypt sér mótorhjól
og ég sit í hliðarvagninum.
Við rennum eftir Þingholtsstrætinu
og ég læt mig hlakka til framtíðarinnar.
(9)
