Frumskógarbókin: Saga Mógla

Frumskógarbókin, Rudyard Kipling
Höfundur: 
Útgefandi: 
Ár: 
2010
Flokkur: 

Um Frumskógarbókina

Frumskógarbókin eftir Rudyard Kipling var fyrst gefin út árið 1894 og hefur lengi talist til sígildra bókmennta. Frægastar eru sögurnar þrjár um Mógla sem elst upp hjá úlfum í skógum Indlands og eignast björninn Balú og svarta hlébarðann Bakíra að vinum. Af öðrum sögum bókarinnar er sagan um mongúsinn Rikki-Tikki-Tavi líklega þekktust.