Af bókarkápu:
Gula sendibréfið er æsispennandi saga úr óbyggðum fyrir ævintýraþyrsta krakka á aldrinum þriggja til hundraðogþriggja.
Sigrún Eldjárn samdi söguna og gerði myndirnar EN HVER SKRIFAÐI GULA SENDIBRÉFIÐ?
Úr Gula sendibréfinu:
Nói skoðar umslagið í krók og kring og skrifar allt mögulegt hjá sér í litla bók. Hann klórar sér í kollinum.
- Hmmmm! Viðfangsefnið er gult pappírsumslag, segir hann.
- Það er um það bil fimmtán sentimetra breitt og á að giska ellefu sentimetra hátt. Því hefur verið vandlega lokað fyrir tveimur dögum og sá sem sleikti límið er með LANGA TUNGU. Ég yrði ekki hissa þótt það kæmi í ljós að hann noti stóra skó, kannski númer 52. Hér má líka greina nokkur FINGRAFÖR eftir einstakling sem á vantar vísifingur vinstri handar. Aðstoðarmaður minn mun nú opna bréfið.
Logi fær hroll og lítur á Nóa.
- Ég þori ALLS EKKI að opna það!
- Ég var heldur ekki að tala um þig, svarar Nói. – Sigga er aðstoðarmaður minn og hún opnar bréfið.
