Úr bókinni:
BRÆÐRALAG GÖTUNNAR
Ég sé mann sem gengur að
öðrum manni og er með horn
í enni, glært hrufótt horn og
hann stangar manninn í
bringuna svo hornið fer á
kaf. Síðan brotnar það af
og hann hristir höfuðið
lítillega, einsog hann sé
loks frjáls. En hornið situr
eftir í brjósti hins, undir
gráum jakkaboðungnum
(17)
