Úr Höggstað: Ævintýri á fjöllum Fjallkonan spennir á sig hamrabeltið
og hendist niður hlíðina
dýfir könnu leiftursnöggt í lækinn
og þambar á hlaupum Hún má engan tíma missa Frést hefur að þýskur ferðamaður
reiki rammvilltur um sveitina
Hún ætlar að ná honum
áður en björgunarsveitin birtist Það tekst henni líka
bregður fyrir hann fæti
og fleygir í lyngið Um kvöldið renna hundarnir
á lyktina
finna manninn
bundinn og blóði drifinn Fagurhvítar fjallasóleyjar
balderaðar í hvíta bringuna
Hallgerður í Laugarnesi Þögnin jafnkunnugleg
og lagður í lófa Umskiptin því engin
ástæðulaust
að kraka í kuml Þögnin svo römm
að hún umlukti
allar sem á eftir komu Þær sem reyndu að
rjúfa hana
fundu vangann
loga af skömm
