Inn og út um gluggann er bók með ljóðum Kristínar Ómarsdóttur við myndverk eftir Önnu Hallin og Ósk Vilhjálmsdóttur. Bókin er tvítyngd því ljóðin eru einnig á ensku í þýðingu Bernards Scudders.
Úr Inn og út um gluggann:
heill telpnabekkur fór svona
á einu bretti
stakk sér út í laugina
sumar breyttust í hafmeyjar
aðrar í svani
sundlaugarverðirnir urðu þarmeð bæði að hringja í
dýralækni og mannalækni sem báðu um net og stærðeflis bala
risastórt fiskabúr
gám fullan af vatni
en við vitum ekki hvort hann var glær
vonandi fyrir okkur sem hefðum getað horft á
þegar hafmeyjarnar og svanirnir elskuðust
þangað til hinum síðarnefndu var hleypt í húsdýragarðinn
hinum fyrrnefndu í sjóinn
ófrískar hafmeyjarnar fæddu lítil svanabörn
gleraugnalaus skriðu þau uppá land, sjónlaus fiskur tórir ekki lengi
í sjónum og enduðu í húsdýragarðinum
heill telpnabekkur fór svona á einu bretti
oní laugina
