Krakkakvæði

Útgefandi: 
Staður: 
Reykjavík
Ár: 
2002
Flokkur: 

Áslaug Jónsdóttir myndskreytti.

Úr Krakkakvæðum:

Landafræði handa lengra komnum [brot]

Í Færeyjum munt þú finna Færeyingana okkar, þar er þorskurinn veiddur og þar eru prjónaðir sokkar, þar eru 18 eyjar og 18 stjórnmálaflokkar. Í Noregi búa Norðmenn, og Noregur er svo langur að enda á milli er alveg endalaust langur gangur og jafnvel norskustu norsku Norðmönnum finnst hann langur. Í Danmörku búa Danir og dálítið fleiri, raunar, þeir borða ósköp af baunum, með baunum hver öðrum launar, og af þessu baunaáti eru þeir kallaðir Baunar. En Svíarnir austur í Svíþjóð sofa aldrei á daginn, þeir tyggja tyggigúmmí ef tómur er á þeim maginn og allir eru á þönum allan guðslangan daginn. Í Finnlandi búa Finnar í ferlegu skógarsvaði, svo hýða þeir sig af hörku með hrísi á vissa staði sólarhringum saman þá sjaldan þeir eru í baði. Í Grænlandi eru grænir Grænlendingar að streða, þeir fara í kæjakakeppni og keyra á hundasleða bæði um græna grundir og Grænlandsjökulsinsbreða.