Laddi

Útgefandi: 
Staður: 
Reykjavík
Ár: 
1991

Ævisaga Þórhalls Sigurðssonar, Ladda.

Af bókarkápu:

Fáir hafa kitlað hláturtaugar landsmanna jafnrækilega og þeir Þórhallur Sigurðsson og Þráinn Bertelsson, Þráinn með kvikmyndum sínum og útvarpsþáttum og Laddi með því að bregða sér í allra kvikinda líki. Og nú hafa Þórhallur og Þráinn sameinað krafta sía og árangurinn er þessi bók sem án efa á eftir að koma mörgum til að hlæja. En þetta er líka bók sem á eftir að koma mörgum á óvart.

Þráinn skrifar um Ladda með þúsund andlitin á einlægan og opinskáan hátt og lesendur fá að kynnast Þórhalli Sigurðssyni, manninum sjálfum bakvið öll gervin. Hvernig stóð á því að upprennandi mublusmiður varð vinsælasti skemmtikraftur þjóðarinnar? ,,...Heimskasti Hafnfirðingurinn - Verslað með sveskjur - Blikur á lofti - Þjófur, nymfóman, lesbía og búktalari - Hláturmildur elskhugi - Heimþrá - Örstutt ástarsamband - Fatafellan og piparsveinarnir - Einnota konur - Gróa á leiti - Ég sjálfur...

Um þetta og miklu meira fjallar bókin í máli og fjölda mynda. Eða eins og Saxi læknir kemst að orði í bókinni, þegar hann er spurður um álit sitt á Þórhalli ungum. ,,Hann var ekki eðlilegur. Ég sá það eins og skot...