Leyndarmálið hennar ömmu

Útgefandi: 
Staður: 
Reykjavík
Ár: 
2003
Flokkur: 

Af bókarkápu:

Óli býr í gömlu húsi í rólegum bæ. Amma hans á heima uppi á lofti. Allir halda að hún sé venjuleg gömul kona sem prjónar sokka og segir sögur. Aðeins Óli veit að amma á sér leyndarmál og daginn sem hann verður sex ára fær hann að kynnast því nánar. Það verður sko dagur í lagi!

Úr Leyndarmálinu hennar ömmu:

Þegar Óli lítur út um þakgluggann hennar ömmu líst honum ekki á blikuna.

- Amma, segir hann hikandi, - hvernig á ég að geta flogið?

Í allri tilhlökkuninni hafði hann aldrei velt því fyrir sér.

- Þú heldur fast í höndina á mér og sleppir ekki. Þannig fljúgum við saman. Ertu tilbúinn?

Síðan tekur amma í höndina á Óla og saman fljúga þau út í sjörnubjartan kvöldhimininn. Það er enginn tími til að vera hræddur.