Um bókina:
Lesandanum er boðið í ferð með strætisvagni sem enga endastöð virðist hafa þar sem farþegarnir rýna í leiðarkortin og úti sér ekki í nóttina fyrir myrkri. Skáldið fer með lesandann í ferðalag jafnt um kunnuglegar sem fáfarnari slóðir og reynist þar margt annað en sýnist.
Úr Loftskipi:
Nætur sem daga
Allir vegir geyma ferðalög
allar hafnir brottför og komu
allir stígar leyndar þrár -
nætur sem daga leggja
óræðir draumar af stað
með slitna kápu á öxlum
og hött úr þruski vindsins
(7)
Víst gæti maður
Víst gæti maður dáið fallega
á sumardegi undir hvítri sólhlíf
eða berfættur í flæðarmáli
stormur í eyrum og salt í vitum
kannski dottandi í hægindastól með bók í hendi
eða á lækjarbakka og sumargola í stráum
jafnvel við kertaflökt
og haustnótt á glugga
fyrir hugarsjónum
sindrandi stjörnuþokur
í næturdjúpi
(19)
