Jónína hlaut ljóðaverðlaunin Ljóðstaf Jóns úr Vör árið 2008 fyrir þetta ljóð. Það hefur ekki komið út á bók.
Miðbæjarmynd
bakið bogið
af bogri á austrænum ökrum
frá sólarupprás
til sólseturs
hörundið hrjúft
eftir óvægna asíska sól
tínir upp tómar flöskur
í hrollköldu tómasarstræti
frá sólsetri
að sólarupprás
aðkomukona
á ótrúlega rauðum skóm
