Mold í skuggadal

Höfundur: 
Útgefandi: 
Staður: 
Reykjavík
Ár: 
1992
Flokkur: 

Úr Mold í Skuggadal:

Útivera

Stelpan er að tína
vallhumal og smára
á lóðinni hjá kallinum
sem á grimma hundinn,
en hundurinn er lasinn
í dag og kemst ekki
einusinni út fyrir
þröskuldinn í góða
veðrið til að bíta
hana litlu stelpu með
glerkrukkuna, hana
litlustelpu sem ætlar
að verða jurtalæknir
og galdralæknir og
missti pabba sinn,
og missti pabba sinn
í hafdjúp og nótt

(39)