Höfundar: Giorgos Seferis, Nikos Gatsos, Jannis Ritsos, Kostis Papakongos og Kostas Kindynis.
Úr Naktir stóðum við:
Santóríni (Gíorgos Seferis)
[brot]
Lút niðrað myrku hafi, ef þú mátt, og gleym flaututónum við nakta fætur sem stigu á svefn þinn í lífi sem sökk. Skrifa, ef þú mátt, á síðustu skel þína daginn, nafnið, staðinn, og varpa henni í hafið að hún sökkvi. Naktir stóðum við á vikrinum, horfðum á sæbornar eyjar, horfðum á rauðar eyjar sem sukku í svefni sínum, í svefni okkar. Naktir stóðum við hér og héldum á vog sem seig á hlið ranglætis Hæll valds, skuggalaus vilji, útreiknuð ást, áform sem þroskast í miðdegissól, vegur örlaganna með slætti ungrar handar á öxlina; á stað sem sundraðist, sem veitir ekki viðnám, á stað sem við áttum einusinni sökkva eyjar með ryði og ösku. Brotin ölturu og vinirnir gleymdir, pálmablöð í aurnum.
