Af bókarkápu:
Hér segir frá skapmikilli stúlku sem vex upp í skjóli hárra fjalla. Að henni standa sterkar konur, fyrirmyndir í tilverunni, en líka karlar sem eru sannfæringu sinni trúir og svíkja ekki lit. Yfir leikjum og kátínu æskunnar hvílir skuggi sem erfitt er að horfast í augu við.
