Strendingar – fjölskyldulíf í sjö töktum

strendingar
Útgefandi: 
Staður: 
Reykjavík
Ár: 
2020
Flokkur: 

Um bókina

Sérhver fjölskylda geymir mörg líf og margar raddir. Pétur vinnur fyrir auglýsingastofu en elur með sér skáldadrauma. Eva kona hans stendur í ströngu sem byggingafulltrúi á Stapaströnd. Saman eiga þau þrjú börn; unglinginn Silju, sem hefur annan fótinn í öðrum heimi, viðkvæma sex ára drenginn Steinar og ungbarnið Ólafíu. Auk þess er á heimilinu eðalborinn og ævaforn köttur, kallaður Mjálmar, og þangað kemur líka faðir Péturs, Bergur, fyrrum bóndi sem hefur nýverið misst konu sína og er við það að hverfa inn í heim gleymskunnar.

Í þessari skáldsögu fylgjumst við með hálfu ári í lífi fjölskyldu, þar sem allir sjö hugarheimar hennar fá rödd. Þannig fléttast saman innra líf þeirra og ytri atburðir, valdabarátta og áföll, togstreita og uppeldisátök, gamall tími og nýr, í marglaga sögu.