Þankagangur

þankagangur
Höfundur: 
Útgefandi: 
Staður: 
Reykjavík
Ár: 
2005
Flokkur: 

Um bókina

Þankagangur er bók sem opnar okkur hugarheim nútímamanns sem virðir fyrir sér lífið um leið og hann tekur fullan þátt í því. Mörg hversdagsleg atvik sem við öll þekkjum verða honum tilefni til að setja þau undir sjónarhorn sem er í senn spaugilegt og grafalvarlegt. Þannig ýtir hann við vanabundnum hugsunum og skoðunum og fær okkur til að sjá atburði líðandi stundar í öðru ljósi. Þar er trúin án allrar væmni sterkur þáttur og svo eðlilegur. 

úr bókinni

Alla ævi hef ég þráð að eignast innri frið. Ég er nefnilega að upplagi frekar ör. Ég hef verið friðlaus af þrá í frið, rótlaus og eirðarlaus. Ég hef leitað hans víða, bæði hérlendis og í útlöndum. Ég hef lesið þykkar bækur sem lofa innri friði. Ég hef talað við fólk sem segist hafa öðlast innri frið. Og stundum gat ég rétt fundið fyrir honum en ég náði honum aldrei alveg. Ég var kominn á þá skoðun að ég fengi ekki frið fyrr en ég væri dáinn.

Ég hef reynt að kaupa mér frið með veraldlegum eignum, vinnu og viðurkenningu. Ég var frægur og ríkur, átti einbýlishús og jeppa og fólk dáðist að mér. En það var sama hvað ég keypti mér af drasli, ég öðlaðist engan frið. Hann fór ekki að koma fyrr en ég missti allt.

Ég komst að því, við illan leik, að fólk getur ekki öðlast innri frið fyrr en það hættir að þrá hann. Sá sem leitar að lífi sínu mun týna því en sá sem gleymir sjálfum sér, kærleikans vegna, mun finna sjálfan sig. Ef manni líður illa þá er það besta sem maður gerir að fara og hjálpa einhverjum öðrum.

(s. 92)