Þrítíð

Útgefandi: 
Staður: 
án útgáfus
Ár: 
1985
Flokkur: 

Úr Þrítíð:

- og einn blús til tanja -

þúsund mílur í burtu
tæpa
tvo metra á skjön

kular og kólnar
kríngd túngl örsmá
dökkbrýndir draumar
dökkvast á sálarskjá

þúsund mílur í burtu
tæpa
tvo metra á skjön

stjarnblindar stírur
skjannhvít mjólkurskán
syndandi sunnudagskvíði
eggjahræra í skál

þúsund mílur í burtu
tæpa
tvo metra á skjön

varúlfur í glasi
veðrahamur í vél
væla geltir tónar
farvel farvel

þúsund mílur í burtu
tæpa
tvo metra á skjön