Þú sérð mig ekki

þú sérð mig ekki
Útgefandi: 
Staður: 
Reykjavík
Ár: 
2021
Flokkur: 

Um bókina

Snæbergsfjölskyldan er efnamikil, voldug og virt í samfélaginu. Allt virðist leika í lyndi, en þegar stórfjölskyldan sameinast í tilefni af afmæli ættföðurins á nýju hóteli á Snæfellsnesi koma brestir í ljós. Rifið er ofan af gömlum sárum og leyndarmál fortíðarinnar leita upp á yfirborðið. Á meðan veisluhöldin standa sem hæst versnar veðrið og í gegnum hríðina heyrast skelfileg öskur. 

Eva Björg Ægisdóttir hefur á fáum árum skipað sér í framvarðasveit íslenskra glæpasagnahöfunda. Marrið í stiganum hlaut virtustu glæpasagnaverðlaun Bretlands sem frumraun ársins 2021.