Undrarýmið

undrarýmið
Útgefandi: 
Staður: 
Reykjavík
Ár: 
2019
Flokkur: 

Um bókina

Undrunin og óravíddir tilverunnar eru meginstefin í ljóðunum sem spretta hér fram og tengjast á óvæntan hátt myndum úr aldagömlum ritum um náttúrufræði og læknisfræði.

Sigurlín Bjarney Gísladóttir hefur vakið athygli fyrir skemmtileg og persónuleg efnistök í ljóðum sínum en bók hennar Tungusól og nokkrir dagar í maí var tilnefnd til Maístjörnunnar árið 2017. Undrarýmið er sjöunda bók hennar.

úr bókinni

Gárur í sveigðu rúmi

Skurðpunktur sköpunar:
togstreita
spnna og núningur

Ég geng eftir Tjarnargötu í norður það er nýtt sumar og sólin skín jafnt á allt sem hreyfist bærist er kyrrt hún gerir engan greinarmun og skín á allt og ég geng í sakleysi mínu og allt í einu án nokkurs fyrirvara sé ég sólböðuð lauf bærast ég hef aldrei tekið eftir þeim áður ég er að losna úr viðjum og þarna er þetta birkilauf sem bærist í andvaranum og hrindir af stað óvæntri bylgju sem dreifist eins og gárur á vatni. Agndofa en ekki dofin heldur bráðnandi bráðnandi vakandi fagnandi. Allt stækkar, þenst út

endurfæðingarspenna

(s. 61)