Úr Unglingunum í eldofninum:
9.
Kóngarósin sem vaggaði þúngu höfði
Í allt sumar er horfin.
Kristantemurnar
Sem blómstruðu í ágúst
Eru orðnar rytjulegar í kulinu
Og grasið hvítt eftir næturfrostið.
Ilmur sumarsins er blásinn burtu.
Eftir fáeina daga leggur veturinn
Hönd sína yfir hæðadrögin
Appelsínurnar byrja að glóa
Undir hvítu líni
Og sítrónurnar verða grænar.
