Varneka : rússnesk sögn endursögð og myndskreytt af Bernadette

Útgefandi: 
Staður: 
Reykjavík
Ár: 
1990

Úr Varenku:

Fyrir löngu bjó ekkja í einum af hinum stóru skógum Rússlands. Hún hét Varenka. Litla húsið hennar stóð í rjóðri djúpt inni í skóginum, þar sem fáir áttu leið um. Húsið var allt smíðað úr viði, meira að segja neglt saman með trénöglum.

Varenka átti alla hluti sem hún þurfti að nota: borð og stóla, kistur til að geyma í brauð og osta, og rekk undir diskana. Í einu horninu hékk íkon, það er mynd af Maríu með Jesúbarnið, og Varenka setti alltaf nýtínd skógarblóm hjá íkoninu sínu. Á nóttuni svaf hún uppi á volgum ofninum eins og venja var í Rússlandi á þeim tíma.