Vísnafýsn

Útgefandi: 
Staður: 
Reykjavík
Ár: 
2010
Flokkur: 

Af bókakápu:

Í Vísnafýsn yrkir Þórarinn Eldjárn laust og fast um smátt og stórt - stökur og smáljóð um ýmsar hliðar tilverunnar, ekki síst þær óvæntu. Hér má finna speki og sprok um sérviskur og samviskur, mannlýsingar og upplýsingar.


Úr Vísnafýsn:

Hnoða hnoðs

Úr mörgu er hægt að moða
mikil eru býsnin.
Leirhnoðs leiðarhnoða
er ljóðafýsnin.

Kreppa

Senn mun kreppan sækja á
sitt með greppitrýni.
Enginn sleppur undan þá
öll við hreppum sýni.

Senn mun kreppan sækja á
sitt með greppitrýni.
Ýmsir sleppa undan þá
aðrir hreppa sýni.