Bókaverðlaun barnanna

Aukaspyrna á Akureyri og Dagbók Kidda klaufa, svakalegur sumarhiti vinsælastar

Sunnudaginn 27. október voru Bókaverðlaun barnanna afhent við hátíðlega athöfn í Borgarbókasafni Tryggvagötu 15. Bækurnar Aukaspyrna á Akureyri eftir Gunnar Helgason og Dagbók Kidda klaufa,  svakalegur sumarhiti eftir Jeff Kinney, í þýðingu Helga Jónssonar, hljóta verðlaunin í ár. Bókaverðlaun barnanna eru veitt ár hvert og sitja börn á aldrinum sex til tólf ára, á öllu landinu, í dómarasætum. Við afhendingu verðlaunanna fluttu börn úr Langholtsskóla frumsamið ljóðatónverk um Reykjavíkurborg, sem samið var í tilefni Lestrarhátíðar í Reykjavík. Verkið var frumflutt við setningu hátíðarinnar á Hlemmi, fyrr í október. Jón Víðis töframaður sá að auki um skemmtiatriði og nokkrir þátttakendur í vali á skemmtilegustu bókinni fengu viðurkenningu í formi bóka og leikhúsmiða. Einnig fær einn þátttakandinn sjálfan Gunnar Helgason í heimsókn í bekkinn sinn. Að lokum fengu krakkarnir að taka þátt í ljóðarugli þar sem hægt var að raða saman þekktum ljóðlínum úr ýmsum áttum og búa þannig til nýtt ljóð. Eitt hljóðaði t.d. svona: Baba, búbú, baba, bú! Þeir voru að stríða krókódíl sem miðaði í hvelli á átta fætur! Bóndi svarar býsna reiður: Baba, búbú, baba, bú! Naga, naga alla daga prakkarinn sá.