Fréttir
Alþjóðadegi læsis er fagnað þann 8. september ár hvert. Hér heima hafa bókasöfn síðustu árin haldið upp á daginn með Bókasafnadeginum þar sem vakin er athygli á mikilvægi bókasafna fyrir læsi í víðum skilningi... Meira
Nanjing í Kína er ein af Bókmenntaborgum UNESCO. Borgin býður upp á óvenjulega „gestadvöl“ fyrir rithöfunda frá öðrum Bókmenntaborgum UNESCO í ár þar sem um fjarprógramm er að ræða í ljósi Covid-19.
Við óskum eftir umsóknum frá rit- og myndhöfundum fyrir jólasögu Borgarbókasafnsins og Bókmenntaborgarinnar 2020.
Ávarp fjallkonunnar í ár var ort af Þórdísi Gísladóttur og flutti Edda Björgvinsdóttir það á Austurvelli á þjóðhátíðardaginn.
Gröndalshús í Fischersundi er opið alla daga í júní, júlí og ágúst frá kl. 13 – 17 og einnig er boðið upp á fjölbreytta viðburði í húsinu í sumar. Frítt er inn í húsið svo og á alla viðburði.
Sögur – verðlaunahátíð barnanna fór fram í þriðja sinn laugardaginn 6. júní síðastliðinn. Á hátíðinni, sem var sýnd í beinni útsendingu á RÚV, voru börn verðlaunuð fyrir sköpunarverk sín og krakkar verðlaunuðu það... Meira
Jónas Reynir Gunnarsson hlýtur ljóðabókaverðlaunin Maístjörnuna í ár fyrir bókina Þvottadagur. Rithöfundasamband Íslands og Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn veita verðlaunin, sem voru afhent í... Meira
Hilmar Hilmarsson hlaut Ísnálina 2020, verðlaun fyrir best þýddu glæpasöguna, fyrir þýðingu sína á bókinni 1793 eftir Niklas Natt och Dag. Að verðlaununum standa Hið íslenska glæpafélag, Bandalag... Meira
Arndís Þórarinsdóttir og Hulda Sigrún Bjarnadóttir hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur 2020 fyrir handrit sitt að bókinni Blokkin á heimsenda. Bókin kemur út í dag, þriðjudaginn 19. maí.
Margrét Tryggvadóttir, Rán Flygenring og Þórarinn Eldjárn hljóta Barnabókaveðlaun Reykjavíkurborgar 2020 fyrir bækurnar Kjarval: málarinn sem fór sínar eigin leiðir, Vigdís: bókin um fyrsta konuforsetann og Hver vill... Meira
Reykjavík bókmenntaborg UNESCO býður gestahöfundi frá annarri Bókmenntaborg til dvalar í Reykjavík í annað sinn 2020. Að þessu sinni var barnabókahöfundum boðið að sækja um í samvinnu við barnabókmenntahátíðina... Meira
Fimm bækur eru tilnefndar til ljóðabókaverðlaunanna Maístjörnunnar sem verða veitt í fjórða sinn síðar í maí.
Sumargjafir Bókmenntaborgarinnar á degi bókarinnar eru splunkunýtt ljóð og mynd frá Þórarni og Sigrúnu Eldjárn og sögustundir í hlaðvarpi með Ævari Þór Benediktssyni þar sem hann les æsispennandi sögu sína um... Meira
Á tímum samkomubanns, lokunar bókasafna og menningarstofnanna og heimavistar okkar flestra er gott að gefa sér tíma til að njóta bókmennta og annarra lista úr stofunni heima.
Bókmenntaborgin birtir vefstiklur með Svikaskáldum í tilefni alþjóðadags ljóðsins og stendur fyrir ljóðagleðisprengju á netinu laugardaginn 21. mars.
Fimmtán bækur eru tilnefndar til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar í ár en verðlaunin eru veitt í þremur flokkum: flokki barna- og ungmennabóka frumsaminna á íslensku, flokki þýddra barna- og ungmennabóka og... Meira
Bókmenntaborgin Lviv í Úkraínu stendur fyrir þýðingarsmiðjunni LitTransformer í annað sinn frá 30. maí - 8. júní 2020. Umsóknarfrestur rennur út 20. mars.
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um gestadvöl fyrir rithöfunda í Bucheon í S-Kóreu, Ljubljana í Slóveníu og Ulyanovsk í Rússlandi.
Þær Bergrún Íris Sævarsdóttir, Bergþóra Snæbjörnsdóttir og Sigríður Kristín Þorgrímsdóttir hlutu Fjöruverðlaunin í ár fyrir bækurnar Kennarinn sem hvarf, Svínshöfuð og Jakobína: Saga skálds og konu.
Skilafrestur handrita sem keppa um Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur 2020 er til og með 9. janúar. Þeim skal skila í Ráðhús Reykjavíkur.



















