Bókmenntaborgir UNESCO fagna alþjóðlegum degi ljóðsins sem er þann 21. mars ár hvert. Árið 2019 fögnuðu Bókmenntaborgir UNESCO um víða veröld saman alþjóðlegum degi ljóðsins í annað sinn. Borgirnar vilja þannig vekja athygli á mikilvægi ljóðlistar sem vettvangs samfélagsumræðu, persónulegrar tjáningar og nýsköpunar tungumála og ýta undir sköpun orðlistar og sýnileika hennar.
UNESCO lýsti 21. mars dag ljóðsins árið 1999 og fagnaði þannig einstakri getu ljóðlistar til að fanga skapandi anda mannsins. Eitt af meginmarkmiðum dagsins er að vekja athygli á fjölbreyttri tungumálaflóru heimsins. Þá er deginum ætlað að endurvekja hefð munnlegrar listrænnar tjáningar og minna á tengsl orðlistar við aðrar listir, svo sem leiklist og tónlist.
Í Reykjavík og nokkrum öðrum Bókmenntaborgum var sjónum sérstaklega beint að röddum kvenna í ljóðlist að þessu sinni og / eða viðfansefnum sem snerta konur, kynferði og jafnrétti. Þessi vefstikla með Gerði Kristnýju var frumbirt af þessu tilefni hér á vef Bókmenntaborgarinnar og á samfélagsmiðlum Bókmenntaborganna. Hér flytur Gerður hluta af ljóðabálki sínum Drápu, sem er óður skáldsins til reykvískrar konu sem var myrt af eiginmanni sínum á áttunda áratug síðustu aldar, en um leið til allra kvenna sem hafa verið beittar ofbeldi. Nokkrar aðrar stiklur með skáldkonum frá Bókmenntaborgum UNESCO voru birtar á vefmiðlum borganna þennan dag, meðal annars frá Baghdad, Tartu, Granada, Ulyanovsk, Norwich og Mílanó. Drápa kom út hjá Forlaginu árið 2014.














