Stærsta verkefni Bókmenntaborgarinnar á Lestrarhátíð 2016 var samstarf við sjö skáld og sjö myndlistamenn um gerð vegglistaverka sem sett voru upp í október víðsvegar um borgina. Við Laugardalslaugina komu saman skáldið Jónas Reynir og myndskreytirinn: Lára Garðarsdóttir. Myndband gerði Helga Rakel Rafnsdóttir.














