Augu í draumi

Útgefandi: 
Staður: 
Reykjavík
Ár: 
1985

Agneta Pleijel: Ögon ur en dröm. Í íslenskri þýðingu Þóru Jónsdóttur.

Úr Augum í draumi:

Sendibréf

  Síðan fer hún aftur í neðanjarðarhreyfinguna
Blöðin, flugritin, flækingurinn
  Eins og í stríðinu. Og eftir stríðið
Og aftur nú í þessu stríði

  Eftirlýsingu er dreift, andlitsfallið
blýfast í kornum myndarinnar. Einn daginn
  er henni boðið í far með herbíl
óvart segir hún sitt rétta heimilisfang

  Og er ekið hæversklega að dyrunum
Heimkomin opnar hún ísskápinn sinn
  Þar flögra tvær óttaslegnar bréfdúfur
Hún kyssir augu þeirra og nef

Og sendir út í heiminn:
  Ég lifi! Við lifum ennþá

(40)