Stokkseyri

Höfundur: 
Útgefandi: 
Staður: 
Reykjavík
Ár: 
1994
Flokkur: 

Úr Stokkseyri:

Flýgur flöskuskeytið
(13. október 1992)

Þegar morgunninn geispar
og nóttin er fjarri

forviða
finn ég þá flösku-
skeyti í fjöruljóðabók

En þessi flaska er
bara gamall kaffibaukur
sólristaður á sortuþangi
og beyglað lokið
felur hvorki anda né bréf
- bara botnfylli af furðu
þurrum kaffikornum

sem leysast senn upp með
rjúkandi vatni sem hvíslast
um eldhúsloftið, og ilmurinn
er indæll og röddin eftir því:

Í húsi í Reykjavík
er einmana skáld og
drekkur illrætið kaffi
með listaskrímslum

Farðu og hitt'ann
farðu og sjáð'ann
farðu og hitt'ann og sjáð'ann
og segð'onum...

Fyrr en nóttin æðir
og dauðinn er nærri

(s. 19-20)