Úr Englafriði:
42
Það er friður við borðið,
þegar við erum saman,
við öll við borðið
Það er friður við hafið
um vor, og æðarfuglinn úar.
Eitt vor enn: Á Íslandi.
43
Í Líbanon eru þeir með það á heilanum
að friður sé hugarró.
Enda kúlnagöt á öllum húsunum.
44
Í Sýrlandi hugsa þeir mikið um friðinn,
hann er efst í huga þeirra
og leiða okkur um rústirnar
sem mörkuðu upphaf okkar menningar.
45
Á Íslandi ríkir friður þegar allir
eru búnir að kaupa allt
sem þá vantar. Og þegar engan vantar.
