Ljóðabókin Indíánasumar kom út árið 1996 og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna sama ár. Hún hlaut Menningarverðlaun DV í bókmenntum 1997.
Bókin hefst á eftirfarandi tilvitnun í Knut Hamsun: Í eyjunni er Indian Summer og hiti - en sú blessuð blíða og hiti -
Úr Indíánasumri:
Himneskt brauð
Sit við eldhúsgluggann
og velti fyrir mér hvort
englar baki brauð. Það er
glampandi sól, og kötturinn
í næsta húsi er kominn að
svörtu rimlagirðingunni
og starir á mig. Gamla
peysan þín liggur á einum
eldhússtólnum
Ég skima fram ganginn,
en þú ert ekki hér. Og
meðan ég hlusta á draum
Stjörnu-Odda í útvarpinu
sker ég aðra sneið af
brauðinu. Kötturinn er
farinn þegar ég stíg
út á timburpallinn
Úr skugga
í sól
einsog fyrst
